Í ákveðnum tilvikum greiða viðskiptavinir inn á mál/verk þegar vinna við þau er að hefjast eða greiða inn á þau á á meðan vinnu stendur. Til þess að skrá fyrirframgreiðslur er best að fara þess leið:
Tökum dæmi um viðskiptavin sem greiðir tvisvar inn á málið og þarf reikning fyrir báðum greiðslum en svo stendur til að gefa út lokareikning þar sem allt er gert upp.
Fyrirframgreiðsla 1 berst upp á 100.000 kr.
- Þá er vara skráð á málið með verðið 100.000+vsk með heitið Fyrirframgreiðsla 1.
- Svo er gefinn út reikningur fyrir vörunni að upphæð 100.000+vsk.
- Svo er vara skráð á málið með neikvætt verð -100.000+vsk með heitið Fyrirframgreiðsla.
(Þetta er gert til þess að fyrirframgreiðslan hafi rétt áhrif á lokauppgjörið.)
Fyrirframgreiðsla 2 berst inn í málið upp á 150.000 kr.
- Þá er vara skráð á málið með verðið 150.000+vsk með heitið Fyrirframgreiðsla 2.
- Svo er gefinn út reikningur fyrir vörunni að upphæð 150.000+vsk.
- Svo er vara skráð á málið með neikvætt verð -150.000+vsk með heitið Fyrirframgreiðsla.
(Þetta er gert til þess að fyrirframgreiðslan hafi rétt áhrif á lokauppgjörið.)
Lokauppgjör verður þá svona.
- Búið er að vinna í málinu fyrir alls 600.000 kr. ekkert af því hefur verið rukkað enn.
- Búið er að taka við fyrirframgreiðslu1 sem er neikvæð vara -100.000 kr
- Búið er að taka við fyrirframgreiðslu2 sem er neikvæð vara -150.000 kr
- Þá er hægt að gefa út lokareikning með allri vinnu og vörunum tveimur. 600.000 -100.000 -150.000 = 350.000 kr.
Önnur leið til þess að vinna með fyrirframgreiðslur er að skrá þær í fjárhagskerfi og skráþær hvergi í Manor. Það hefur sína kosti og galla.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina