Margir rukka akstur í tengslum við mál/verk sem unnið er að. Það er einfalt að skrá akstur í Manor. Til þess að skrá akstur er farið í bláa Stofna hnappinn efst til hægri. Þar er hægt að velja Akstur.
Þegar smellt er á Akstur birtist gluggi til þess að skrá akstursfærslu.
Aðeins er nauðsynlegt að fylla út þá reiti sem eru merktir með * rauðri stjörnumerkingu.
* Mál
- Þú velur málið sem þú vilt skrá kostnaðinn á.
* Lýsing
- Lýsing er lýsing á ferðinni sem farinn var. Á reikning mun lýsingin koma sem lýsing á akstursfærslunni.
* Vegalengd
- Hér þarf að skrá inn vegalengd í km talið. Ástæðan er sú að oftast er rukkað eftir kílómetragjaldi, til dæmis greiðir hið opinbera akstur eingöngu miðað við tiltekið kílómetragjald.
Vegalengd til greiðslu
- Ef svo vill til að þú ætlir að rukka meira eða minna en það sem var ekið þá er möguleiki að skrá km-fjölda sem verður rukkaður og kemur á reikninginn.
* Taxti
- Hér er valinn sá taxti sem nota á um þessa akstursfærslu. Taxtinn er nánar skilgreindur undir Stjórnborð -> Taxtar. Athugið að þú gætir þurft aukin aðgangsréttindi til þess að geta breytt töxtum í stjórnborði.
* Dagsetning
- Hér þarf að skrá hvenær aksturinn átti sér stað.
Greiðandi
- Hægt er að velja hver eigi að greiða fyrir aksturinn. Algengast er að viðskiptavinurinn sem skráður er á málið sé sá sem borgi, og þá er valið sami og viðskiptavinur, en svo er hægt að velja annan greiðanda ef það á við.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina