Það er mjög einfalt að tengjast Manor með ODATA tengingu og sækja þannig gögn sem nota má í margvíslegum tilgangi, svo sem lifandi Excel greiningarvinnu eða Power-BI greiningum og skýrslum.


Undirbúningur í Manor

Aðeins þarf nokkur einföld skref ti þess að tengjast. Sá sem setur upp tenginguna í Manor þarf að vera með réttindi kerfisstjóra. Því næst eru skrefin þessi:


  1. Stofna kerfisnotanda
    Þá er farið í Manor > Kerfisstjórn > Notendur > Stofna kerfisnotanda. Þessi notandi er eingöngu notaður í kerfislegum tilgangi og verður sá sem fær útgefinn á sig API lykil í næsta skrefi.

  2. Stofna API lykil
    Til þess að tengjast MAnor með ODATA þá þarf að stofna API lykil sem er eingöngu nýttur í þeim tilgangi. Þá er farið í Manor > Kerfisstjórn > API lyklar > Stofna lykil. Skrá þarf lykilinn hjá sér og nýta svo í næsta skrefi.

  3. ODATA vefslóðin
    Þegar kemur að því að tengjast mun forritið sem notað verður óska eftir vefslóð á odata tenginguna. Þá þarf einfaldlega að bæta odata aftan á vefslóðina í Manorinn þinn.

    Ef vefslóðin á þinn Manor er til dæmis https://secure.manor.is/mittfyrirtaeki

    Þá er ODATA vefslóðin þessi: https://secure.manor.is/mittfyrirtaeki/odata

  4. Auðkenning
    Manor ODATA tengingin byggir á hefðbundinni auðkenningu ODATA tenginga sem heitir Basic. Það þýðir að í stað þess að skrá inn notendanafn og lykilorð er notast við leynilegan API lykil (sjá skref 2).

Að tengjast

Þá er komið að því að tengjast. Skoðum hér dæmi þar sem tengst er með Excel.


  1. Bæta við gagnastraumi
    Þá er farið í Excel > Data > Get Data > From Other Sources > From OData feed

  2. Skrá inn vefslóð
    Hér er skráð inn vefslóðin úr fyrri skrefi 3 hér að ofan og smellt á OK.



  3. Stilla auðkenningu
    Hér þarf að velja Basic og skrá svo inn API lykilinn úr skrefi 2 og velja svo sömu vefslóð í fellivalmynd. Ekkert er sett í reitinn user name þar sem auðkenningin byggir á API lyklinum. Svo er smellt á Connect.



  4. Allt klárt
    Þá er tengnignin klár og hægt að hefja notkun á gagnastraumnum í Excel.


Aðgengileg gögn

Þau gögn sem sjást í ODATA tengingu eru þau gögn sem notenudr Manor hafa þurft á að halda í samhengi við greiningar og skýrslur í gagnavöruhúsum og Power BI. Gott er að hafa samband við tengilið sinn hjá Manor sem getur útskýrt gagnalíkanið og aðstoðað við vinnslu gagnanna.