Að skrá kostnað í erlendri mynt er mjög einfalt í Manor. ISK er grunnmynt í Manor og eru upphæðir reiknaðar í og úr ISK eftir því sem við á víða í Manor. Þegar kemur að kostnaði er virknin einföld og í takt við góða bókhaldsvenju og virkni helstu fjárhagkserfa. 


Kostnaður í EUR og viðskiptavinur í ISK

Gjaldmiðill viðskiptavinar ræður gjaldmiðli máls/verks. Hér er því málið/verkið í ISK.

  • Kostnaður er 100 EUR og er skráður inn á mál/verk. Sjá hér hvernig skráning fer fram.
  • Kostnaðurinn var dagsettur 01.10.2023 og gengi ISK/EUR var þá þá 148.
  • ISK upphæð kostnaðarins er því 100 x 148 = 14.800 kr.
  • Manor skráir færsluna inn með EUR gildið 100 og ISK gildið 14.800

  • Svo er kosntaðurinn settur á reikning mánuði síðar 01.11.2023
  • Þá er notast við sömu ISK upphæð og skráð var þann 01.10.2023.
  • Á reikninginn fer því kostnaður að upphæð 14.800 kr.

Þetta þýðir að kostnaður er reiknaður yfir í ISK miðað við dagsetningu kostnaðarreiknings. Engar frekari umreikningur á sér stað nema að viðskiptavinur sé í erlendri mynt, sjá þá næsta dæmi.


Kostnaður í EUR og viðskiptavinur í SEK

Gjaldmiðill viðskiptavinar ræður gjaldmiðli máls/verks. Hér er því málið/verkið í SEK.

  • Kostnaður er 100 EUR og er skráður inn á mál/verk. Sjá hér hvernig skráning fer fram.
  • Kostnaðurinn var dagsettur 01.10.2023 og gengi ISK/EUR var þá þá 148.
  • ISK upphæð kostnaðarins er því 100 x 148 = 14.800 kr.
  • Manor skráir færsluna inn með EUR gildið 100 og ISK gildið 14.800

  • Svo er kosntaðurinn settur á reikning mánuði síðar 01.11.2023
  • Reikningurinn verður í SEK því viðskiptavinurinn er í SEK.
  • Þá er umreiknað frá ISK yfir í SEK á gengi ISK/SEK dagsins 01.11.2023 sem var 12
  • Á reikninginn fer því SEK upphæð kostnaðrins er því 14.800 / 12 = 1.233 SEK.


En ef ég vil rukka nákvæmlega sömu töluna í erlendu?

Stundum hefur notandi aðra skoðun á þeirri tölu sem eigi að fara á reikning en hin reiknaða stærð. Það er lítið mál. Þá er hægt að breyta kostnaðarfærslunni í reikningagerð þannig að upphæð til greiðslu endurspegli þá tölu sem á að fara á reikninginn. Takið þó eftir að sú upphæð í mynt kostnaðarreikningsins.