Það er einfalt að stofna verkefni í Manor. Verkefni er eitthvað sem þarf að klára. Það þarf ekki að vera tímasett þó það sé hægt. Til þess að stofna verkefni er farið í bláa Stofna hnappinn efst til hægri í Manor.
Þá birtist viðmót til þess að skrá inn upplýsingar um atburðinn. Aðeins er nauðsynlegt að skrá það sem er * rauðmerkt með stjörnu.
Það sem hægt er að skrá um verkefni er eftirfarandi.
* Nafn verkefnis
- Gott er að gefa verkefninu lýsandi nafn svo það sé augljóst hvað þurfi að gera við að sjá verkefnið í verkefnalista.
Mál
- Hægt er að hengja verkefnið á tiltekið mál en það er þó ekki nauðsynlegt.
* Útlhlutað til
- Sjálfgefið er að þú vinnir verkefnið og það sé því úthlutað þér. Það er hins vegar einfalt að úthluta verkefninu á einhvern samstarfsmann ef hann á að bera ábyrgð á því.
Dagsetning
- Ef verkefninu á að vera lokið á tilteknum degi þá má setja dagsetningu. Verkefni með dagsetningu fá sérstaka athygli þegar dagsetningin nálgast með sérstökum merkinum um að verkefni sé á dagskrá á morgun eða í dag. Einnig má sleppa dagsetningu og er verkefnið þá ótímasett.
Tímasetning
- Verkefni sem er dagsett getur einnig verið tímasett. Það er þægilegt að tímasetja verkefni ef það á við til dæmis ef skila þarf greinargerð fyrir kl 10 á tilteknum degi. Tímasetning opnar einnig möguleika á að fá nákvæmar áminningar.
Fyrri áminning
- Manor getur sent þér áminningu um verkefni á þeim tíma sem þú kýst, hvort sem það er 1 klst fyrir tímasetningu eða mörgum klst fyrr.
Seinni áminning
- Sama og fyrri áminning nema önnur ef vill.
Lýsing
- Lýsing verkefnis er gagnleg og þá sérstaklega ef verið er að úthluta verkefni til annarra.
Lokið
- Þegar og ef verkefni er lokið er gott að haka við Lokið.
Þegar búið er að skrá inn allar upplýsingar er smellt á Vista verkefni.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina