Að eyða viðskiptavini

Breytt Mon, 18 Apr, 2022 kl 11:48 PM

Það er ekkert mál að eyða viðskiptavini. Þú ferð í Viðskiptavinir í vinstri valmynd, velur þann viðskiptavin sem þú vilt eyða og smellir svo á hnapinn Eyða viðskiptavini.


save image


Þegar þú smellir á hnappinn [Eyða viðskiptavini] kemur upp viðvörun.


save image


Hér þarftu að staðfesta aðgerðina. Áður en þú gerir það er ágætt að lesa næstu kafla hér að neðan.


Hvað verður um mál viðskiptavinarins?

Þau haldast öll áfram inni í Manor. Málin verða áfram sýnileg með hinn eydda viðskiptavin sem viðskiptavin en þegar málið er skoðað er sést að búið er að eyða viðskiptavininum.


save image


Sé smellt á málið sést betur að viðskiptavini hefur verið eytt.


save image



Hvað verður um óútskuldaða tíma viðskiptavinarins?

Þeir halda sér allir þar sem það hefur engin áhrif á mál eða færslur í málum að eyða viðskiptavini.


Er hægt að hætta við að eyða viðskiptavini?

Já ef þú eyddir viðskiptavini óvart þá getur þú haft samband við þjónustuver í síma 546-8000 eða adstod@manor.is og látið taka aðgerðina til baka.

Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina