Það er ekkert mál að eyða viðskiptavini. Þú ferð í Viðskiptavinir í vinstri valmynd, velur þann viðskiptavin sem þú vilt eyða og smellir svo á hnapinn Eyða viðskiptavini.
Þegar þú smellir á hnappinn [Eyða viðskiptavini] kemur upp viðvörun.
Hér þarftu að staðfesta aðgerðina. Áður en þú gerir það er ágætt að lesa næstu kafla hér að neðan.
Hvað verður um mál viðskiptavinarins?
Þau haldast öll áfram inni í Manor. Málin verða áfram sýnileg með hinn eydda viðskiptavin sem viðskiptavin en þegar málið er skoðað er sést að búið er að eyða viðskiptavininum.
Sé smellt á málið sést betur að viðskiptavini hefur verið eytt.
Hvað verður um óútskuldaða tíma viðskiptavinarins?
Þeir halda sér allir þar sem það hefur engin áhrif á mál eða færslur í málum að eyða viðskiptavini.
Er hægt að hætta við að eyða viðskiptavini?
Já ef þú eyddir viðskiptavini óvart þá getur þú haft samband við þjónustuver í síma 546-8000 eða [email protected] og látið taka aðgerðina til baka.