Að stofna mál í Manor er mjög einfalt. Þú getur stofnað eins mörg mál og þér dettur í hug og engin takmörk eru á fjölda mála. Þú getur svo skráð tekjur, stofnað verkefni, hlaðið inn skjölum og gert fjöldan allan af aðgerðum við hvert mál. Þannig byggir þú upp einstaka málaskrá í Manor.
Fyrst finnur þú hnappinn efst til hægri sem heitir Stofna mál.
Þú smellir á hann og þá birtist gluggi þar sem þú þarft að slá inn frekari upplýsingar.
Aðeins er nauðsynlegt að fylla þá reiti sem eru merktir með * merki.
- Nafn máls
- Þú getur gefið málinu hvaða nafn sem er. Mörg mál geta haft sama nafn.
- Tegund máls
- Hægt er að setja upp málasniðmát og velja sniðmát fyrir málið.
- Viðskiptavinur
- Hægt er að velja viðskiptavin eða stofna nýjan strax með því að smella á hnappinn.
- Ábyrgðarmaður
- Hvert mál verður að hafa skilgreindan ábyrgðarmann. Sá verður einnig að vera þátttakandi í málinu.
- Þátttakendur
- Mál getur haft marga þátttakendur. Þeir sem eru þátttakendur í máli geta séð málið og þau gögn sem því tengjast. Ábyrgðarmaður verður að vera þátttakandi.
- Tengiliðir
- Hægt er að að skrá einn eða fleiri tengiliði á mál. Einn tengiliður getur verið á mörgum málum.
- Málaflokkar
- Hægt er að flokka mál með málaflokkum.
- Innheimta virðisaukaskatt
- Mál geta verið með eða án virðisaukaskatts. Sú stilling ræður því hvort vsk sé lagður á við útskuldun málsins. Meira um virðisaukaskatt hér.
- Tungumál
- Hægt er að velja tungumál fyrir málið. Það hefur þau áhrif að vinnuskýrslan kemur út á því tungumáli sem valið er.
Þegar búið er að gefa málinu nafn og/eða skrá inn frekari upplýsingar er hægt að stofna málið með því að smella á hnappinn Vista mál.
Þá birtist nýja málið á skjánum.