Manor tengist beint við dómasafn héraðsdómstólanna. Allir nýir dómar birtast því samstundis í Manor og þeir eru birtir á vef viðkomandi héraðsdómstóls.
Að bæta héraðsdómi við mál í Manor er mjög einfalt. Þá er einfaldlega farið í Rannsóknir og slegið inn leitarorð. Þá koma upp niðurstöður úr öllu rannsóknarsafninu. Hér má sjá niðurstöðu dóms í máli E-1695/2015.
Því næst er smellt á dóminn. Þá kemur hann upp í sér glugga, þar má velja mál og smella á Afrita í mál. Þá verður til afrit af dómnum við það mál.
Þegar búið er að afrita dóminn er hægt að lita texta gulann sem geymist þá með dómnum við málið svo einfalt sé að sjá síðar hvað sé athyglisvert í dómnum.
Þegar farið er í málið sjálft má sjá þær rannsóknir sem búið er að bæta við málið í kassa í hægri dálki.
Eldri dómar
Allir dómar réttarins frá 2006 til dagsins í dag eru í rannsóknasafni Manor.