Manor tengist beint við dómasafn Hæstaréttar. Allir nýir dómar birtast því samstundis í Manor og þeir eru birtir á vef Hæstaréttar.
Að bæta hæstaréttardómi við mál í Manor er mjög einfalt. Þá er einfaldlega farið í Rannsóknir og slegið inn leitarorð. Þá koma upp niðurstöður úr öllu rannsóknarsafninu. Hér má sjá efstu niðurstöðu úr Hrd. 298/2015.
Því næst er smellt á dóminn. Þá kemur hann upp í sér glugga, þar má velja mál og smella á Afrita í mál. Þá verður til afrit af dómnum við það mál.
Þegar búið er að afrita dóminn er hægt að lita texta gulann sem geymist þá með dómnum við málið svo einfalt sé að sjá síðar hvað sé athyglisvert í dómnum.
Þegar farið er í málið sjálft má sjá þær rannsóknir sem búið er að bæta við málið í kassa í hægri dálki.
Eldri dómar
Allir dómar réttarins frá 1999 til dagsins í dag eru í rannsóknasafni Manor.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina