Það er mjög einfalt að tengja Manor við Payday með beinum hætti í gegnum vefþjónustu hjá Payday.


Hvað gerir tengingin?

Áður en farið er í að tengja Manor við Payday er ágætt að vita hvernig tengingin virkar. Tengingin sparar mikla handavinnu og hefur reynst vel.


Sölureikningar

  • Reikningar gerðir í Manor eru strax stofnaðir í Payday og bókast um leið.
  • Ef hakað er við að senda vinnuskýrslu með reikningi í Manor þá fer hún yfir í Payday sem viðhengi reiknings. Ef reikningur fer svo rafrænt fer viðhengið með.


Gjalddagi / eindagi

  • Dagsetning reiknings er ákveðin í Manor og verður gjalddagi reikningsins sem stofnast í Payday.
  • Eindagi reiknings er ákveðinn í Manor og verður eindagi reikningsins sem stofnast í Payday.
    • Almennur greiðslufrestur er stilltur undir: Manor > Stjórnun > Fyrirtæki
    • Sértækur greiðslufrestur er stilltur í spjaldi hvers viðskiptavinar.


Rafrænir reikningar

  • Það er stillign í MAnor hvort rafrænn reikningur sé sendur þegar reikningur er stofnaður í Payday.
  • Sjá stillingu undir: Manor > Stjórnun > Fyrirtæki > Payday fjárhagskerfi.
  • Ef þessi stillign er stillt á Já þá mun rafrænn reikningur sendast sjálfvirkt um leið og reikningurinn úr Manor bókast í Payday.
     

Kröfustofnun

  • Ef Payday er still þannig að stofna eigi kröfu í netbanka í kjölfar bókunar þá mun það gerast sjálfvirkt um leið og reikningurinn úr Manor bókast í Payday.


Viðskiptamenn

  • Manor uppfærir viðskiptamann í Payday þegar reikningar er stofnaður á hann, ekki þess á milli.
  • Nýr viðskiptamaður er stofnaður í Payday ef hann er ekki til þegar Manor er að stofna á hann reikning.


Reikningar í erlendri mynt

  • Í Manor er viðskiptamaður í tiltekinni mynt. Til dæmis EUR og þá eru allir reikningar gefnir út á hann í EUR.
  • Manor stofnar nýjan viðskiptamann í Payday þegar fyrsti reikningurinn er gefinn út á hann.
  • Sá viðskiptamaður mun stofnast í Payday án sérsakrar myntar - þar sem hver reikningur hefur sína mynt í Payday.
  • Reikningar á hann eru svo stofnaðir í EUR.


Sækja auðkennislykil í Payday


  1. Fyrst er farið á vefsvæði Payday sem er staðsett hér.
  2. Þar þarf að skrá sig inn með netfangi og notendanafni sem fæst hjá Payday.
  3. Þegar búið er að skrá sig inn blasir þessi mynd við. Hér þarf að velja "Stillingar"  og svo "Fyrirtæki". Þá opnast síða fyrir stillingar fyrirtækis. Þar skal velja flipann "Samþættingar" og smella þar á hnappinn "Bæta við".


  4. Þá kemur upp gluggi til að stofna svonefndan API lykil sem við setjum inn í Manor í næstu skrefum..
    • Veljum tegund tengingar: PaydayAPI
    • Þá gefum við lyklinum nafn: Manor tenging
    • Nú þarf að geyma hjá sér bæði ClientID og ClientSecret.
    • Svo má smella á Staðfesta




    • Athugið að lyklarnir hér á myndinni eru skáldaður og ekki nothæfir. Hvert fyrirtæki þarf að sækja eigin lykil.


Uppsetning á Payday tengingu í Manor

Hér ætlum við að setja upp vefþjónustutengingu við Payday. Mikilvægt er að ljúka öllum fyrri skrefum áður en haldið er áfram hér. Afar einfalt er að virkja Payday tengingu og eru skrefin þessi:


  1. Skrá sig inn í Manor.
  2. Fara þar í Manor > Stjórnun > Fyrirtæki > Fyrirtæki ehf.
  3. Hér sjáum við stillingasvæði Fyrirtækis ehf. Þar er svæði sem nefnist Reikningagerð. Smellum þar á Breyta hnappinn.



  4. Þá kemur upp gluggi til stilla val á bókhaldskerfi. Veljum þar Payday fjárhagskerfi og smellum á Vista.


  5. Þá sjáum við að nýtt svæði fyrir stillingar Payday fjárhagskerfis er nú sýnilegt. Smellum þar á Breyta.


  6. Þá kemur upp gluggi fyrir stillingar. Hér ætlum við að skrá inn auðkennislykilana tvo, ClientID og ClientSecret sem við sóttum í Payday hér að framan í skrefi 4. í fyrsta kafla.

    Best er að afrita lyklana (copy) úr Payday og líma þá svo (paste) í reitinina í Manor.

    Því næst er smellt á Vista hnappinn.


    * Athugið að lykillinn hér á myndinni er skáldaður og ekki nothæfur. Hvert fyrirtæki þarf að sækja eigin lykil.

  7. Nú er búið að virkja tenginguna við Payday.