Að gefa út reikning í Manor er einfalt. Hægt er að velja tengingu við ýmis bókhaldskerfi en það má einnig sleppa því. Hér er farið yfir útgáfu reiknings án bókhaldskerfis. Viðmótið er sett upp með það fyrir augum að reikningagerð sé eins einföld og hægt sé að hugsa sér. Til þess að gefa út reikning ferðu í "Reikningar" í vinstri valmyndinni. Þá kemur upp liti yfir reikninga sem hafa þegar verið gefnir út. Til þess að gefa út nýjan er smellt á "Gefa út reikning" hnappinn efst til hægri.


save image


Eftir að smellt er á hnappinn kemur upp viðmót til þess að velja hvaða mál þú ætlar að gefa út reikning vegna. Efst sérðu hversu mikið er útistandandi alls, svo koma leitarmöguleikar og síur, og svo koma málin sem hafa einhverja óreikningsfærða stöðu í lista.


save image


Ágætt er að átta sig vel á leitarmöguleikum og síum í þessu viðmóti.


save image


  • Hraðsía: Hér er hægt að skrifa leitarorð í leittarreitinn ef málin eru mörg og þú ert að leita að tilteknu máli.
  • Viðskiptavinasía: Hér er hægt að velja tiltekinn viðskiptavin.
  • Ábyrgðarmannasía: Hægt er að sjá mál hjá tilteknum ábyrgðarmönnu.
  • Opin/lokuð sía: Hægt er að sjá aðeins opin mál, lokuð mál, eða bæði.
  • Tímabilsveljari: Aftast er svo hægt að velja tímabil og þá sést aðeins það sem er óreikningsfært á því tímabili.


Einfalt er að blanda síunum saman til þess að fá tiltekna niðurstöðu.


Þá er komið að því að skulda út. Þá er mál valið úr listanum.


save image


Þá kemur upp viðmót með málinu sjálfu og þar má velja þau atriði sem á að reikningsfæra.


save image


Hér skal velja dagsetningu reiknings, haka svo við þær línur sem á að útskulda og smella á "Vista reikning".


Aðrir möguleikar eru þessir:


  • Ef þú vilt breyta færslu: Smelltu á færsluna sjálfa og hún opnast í öðrum glugga. Þar geturðu breytt texta, magni, o.s.frv.

  • Ef þú vilt færa færslu yfir á annað mál: Þá hakarðu eingöngu við þá færslu, eina eða fleiri, og smellir á hnapinn "Flytja valdar línur".

  • Ef þú vilt breyta kjörum málsins: Þá smellirðu á hnapinn "Kjör" efst til hægri. Þá opnast annar gluggi þar sem þú getur tilgreint kjör málsins.

  • Ef þú vilt bæta við fleiri tímum, akstri, vörum, kostnaði: Smelltu þá á goggin til hægri í hnappnum "Skrá tíma".

  • Ef þú vilt skrifa athugasemd á reikninginn: Skráðu þá upplýsingar í reitinn "Athugasemd" og þær birtast á reikningi.


Þegar búið er að vista reikning eru öll atriðin sem voru valin merkt sem reikningsfærð í Manor og ekki hægt að breyta þeim hér eftir (nema eyða reikningi).


Þegar búið er að vista birtist þetta viðmót sem sýnir reikninginn tilbúinn.


save image


Hér má sækja vinnuskýrslu vegna reiknings.


En hvar er reikningurinn sjálfur?

Það fer eftir bókhaldsstillingum hvernig reikningurinn birtist hér. Í dæminu hér að ofan er ekkert bókhaldskerfi valið og því er enginn lögformlegur reikningur til staðar. Manor merkir allt sem valið var sem reikningsfært en aðhefst ekki frekar við útgáfu reiknings.


Hvað verður um það sem ekki var valið?

Þau atriði sem ekki voru valin við gerð reiknings verða áfram óreikningsfærð í Manor og birtast næst þegar þú ætlar að gefa út reikning. Ekkert gleymist því eða tapast.