Þægilegt er að greina rekstur fyrirtækisins með skýrslum í Manor. Skýrslur eru tvenns konar. Myndrænar skýrslur og gagnaskýrslur. Gagnaskýrslur eru mjög góðar til þess að nálgast gögn til frekari vinnslu eða þegar þarf að finna ákveðnar færslur eða annað þvert á mál, notendur o.fl. Til þess að nálgast gagnaskýrslur er farið í Skýrslur í vinstri valmynd og þar í Gagnaskýrslur.


save image


Þá er hægt að velja ýmsar skýrslur. Veljum þar t.d. Tímar til þess að sjá allar tímafærslur hjá fyrirtækinu.


save image


Hér má svo þrengja listann yfir tíma með margvíslegum hætti svo sem eftir:

  • Greiðendum
  • Málum
  • Ábyrgðarmönnum
  • Notendum
  • Reikningsfært / óreikningsfært
  • Ákveðin tímabil


Svo er alltaf hægt að taka töfluna, eins og hún er á hverjum tíma, út í excel formi með því að smella á hnappinn lengst til hægri.


save image